Apple lokaði í dag Apple Store og er því oftast um eitthvað nýtt að ræða.
Svo virðist sem iPod nano hafi fengið aukið litaúrval því nú er hægt að fá 8GB í bleikum lit.
Vúhú!
Apple hefur gefið út nýja iTunes auglýsingu með Mary J. Blige. Ágæt jólastemning í auglýsingunni..
Skoðið hana með því að smella á myndina að ofan.
Samkvæmt nýjustu fréttum hefur viðskiptaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, tilkynnt í dag að stimpil- og vörugjöld verða lögð niður á næstu mánuðum.
Þetta eru að sjálfsögðu frábær tíðindi fyrir okkur iPod-neytendur og vonum við að þessi s.k. „iPod-tollur“ verði afnumin sem allra fyrst.
Eins og staðan er í dag ber iPod-spilarinn 25% vörugjöld og 7,5% í toll.