Jæja þá er komið að fyrstu umfjöllun um leik á þessar blessuðu
síður okkur og það kemur víst í minn hlut að reyna að segja aðeins
frá honum. Eins og tölurnar gefa kannski til kynna þá var þessu
sigur aldrei í hættu og ekki margir sem nennta að spila svona
leik.
Leikurinn hófst með nokkuð hefðbundnu byrjunarliði;
Marki = Gulli Cake
VH = Danni Tan
VS = Bjarki BIG
Miðja = Óli Bjarki (Meistaraflokksmaður)
HS = Biggi Bringa
HH = Maggi Browneyed Boy
Lína = Bjössi Bomber
Á bekknum voru síðan hinir síkátu Úlfur Huzzler og Addi JR.
Fyrstu 5 mínótur leiksins voru æsispennandi og leikurinn í járnaum.
jafnt var á öllum tölum alveg þangað til staðan var 5-5 þá tókst
HK-vörninni að loka glufunum og settu í fluggírinn. Á um það bil
korteri tókst HK að snúa leiknum algerlega sér í HK en þeir skoruðu
12 mörk á móti 0 hjá UMFA og staðann því orðinn 17-5. En í stöðunni
11-5 var besti maður vallarinns til þess Bjössi Bomber tekinn af
leikvelli af hinum leikreynda og útsjónar sama þjálfara Alexander
Stallone, vegna eimsla í hné og var hann látinn hvíla restina af
leikum og koma þá Addi JR. inna og má segja að hann hafi nýtt sitt
tækifæri bæði í HS og á línu þónokkuð vel. Úlfur Huzzler kom svo
inn á um miðbik hálfleiksins og átti bara nokkuð náðugan dag í
markinu.
Í hálfleik var svo staðan 21-9 og því var hálfleiksræðan bara í
rólegri kantinum því svo sem enginn spurning um hvor myndi vinna
bara hversu stór sigurinn yrði.
Í seinni hálfleik slökuðu HK-menn svo heldur á en héldu þó áfram að
bæta aðeins við forskotið, þegar um 10. mín. lifðu svo af leikum
kom Gulli Cake aftur inn á og fékk aðeins á sig 2 mörk, allt
glæsilegt um það að segja.
Lokastaðann var því sem sagt 36-18 og má með sanni segja að
leikmenn HK hafa skift mörkunum bróðurlega á milli sín.
Maraskor leikmanna var eftirfarandi;
Leikmaður
|
Mörk
|
Áminning
|
2.Mín
|
Ólafur (Meistarflokksmaður) Bjarki Ragnarsson
|
8
|
X
|
|
Bjarki Big Már Gunnarsson
|
7
|
X
|
|
Daníel Tan Már Pálsson
|
7
|
|
|
Birgir Bringa Þór
Jóhannson
|
5
|
X
|
X
|
Björn Bomber Þórsson
Björnsson
|
4
|
|
|
Arnar JR. Atli
Sigurgíslasson
|
3
|
|
|
Magnús Browneye Magnússon
|
2
|
|
|
Vill ég afsaka að ekki séu fyrir hendi tölur um hvað markmenn vörðu
en munum við reyna að koma því á fyrir næstu leiki.
Einnig munu koma myndir fljótlega úr leiknum og einnig myndir af
leikmönnum fljótlega og því endinlega að fylgjast með.
Einngi mun Björn Bomber fara til sjúkraþjálfara á morgun og
spennandi að sjá hvort meiðsli séu eins alvarleg og Alexander
Stallone heldur að þau séu
Kveð að sinni
Björn B.